Það er komið haust. Sumarið, með birtuna sína, sólina, blómin, fuglana, stuttermabolina og lautarferðirnar, hefur kvatt í bili. Dagarnir eru að verða styttri, hitastigið lægra og vindurinn naprari.
Margir fyllast leiða þegar sumri lýkur. Okkur finnst vera komið að kaflaskilum, eitthvað sé að taka enda og dimman að hellast yfir. „Hauströkkrið yfir mér,“ kvað Snorri Hjartarson, og það er auðvelt að fyllast melankólíu og leggjast í dvala.
Þegar allt er líka að byrja
En það eru aðrir sem líta til haustsins með eftirvæntingu og tilhlökkun, vegna þess að það er jú líka allt að byrja:
- Nú þegar réttir eru afstaðnar, uppskeran komin í hús, skólinn byrjaður og haustverkefnin komin af stað
- Nú þegar fjöllin eru orðin hvítröndótt og gróðurinn í værðarlegum haustlitum
- Nú þegar rútínan hefur tekið völdin og við erum pínu fegin en byrjum samt strax að láta okkur dreyma um frelsið úti við
- Nú þegar veðrið verður ögn hryssingslegt og okkur langar kannski bara að kúra í sófanum undir teppi
Nú þegar styttist í veturinn, snjóinn og útileikina.
Veðrið er hugarástand
Það er sem sé rétt að fara að huga að vetrinum og útivistinni. Á Íslandi búum við svo vel að geta í raun treyst á kulda og trekk lengst af ári þegar við förum út að leika – hvort sem það er næðandi vindur og slyddurigning, stórbrotið sjónarspil í beljandi stórhríð eða þurrir, brakandi bjartir frostdagar. Hér á landi verðum við einfaldlega að tileinka okkur þá hugsun að veðrið sé hugarástand – og að það megi klæða sig eftir því.
Það kemur nefnilega í ljós að útivist í kulda er alveg hrikalega góð fyrir heilsuna. Við styrkjum ónæmiskerfið, minnkum streitu, bætum geðið og byggjum upp þrek – auk þess að nýta dagsljósið til fulls og njóta þeirra jákvæðu áhrifa sem það hefur á líkama og sál. Að ekki sé minnst á hvað það er gaman að vera bara úti, anda að sér fersku lofti og hlæja í góðum félagsskap. Eða koma inn eftir dásamlegan útivistardag, fá sér heitan drykk við kertaljós og skiptast á sögum.
Á Sóta elskum við að vera úti – og við elskum veturinn ekki síður. Við bjóðum upp á alls konar útivist: skíðaferðir fyrir byrjendur og lengra komna, snjóþrúguferðir og indælar flotstundir í heitri Barðslaug. Sóti Lodge bíður svo gesta á kvöldin, með dásamlegum mat, hlýlegri þjónustu og þeirri kyrrð og ró sem endurnærir á dimmum vetrarkvöldum.
Leyfðu þér að njóta vetrarins með okkur.