Í fótspor feðranna
Í þessari gönguferð þræðum við nokkrar sögufrægustu leiðirnar á Tröllaskaga, sem tengja saman Ólafsfjörð, Siglufjörð og Fljótin. Leiðsögn í ferðinni annast Björn Z Ásgrímsson og Ólöf Ýrr Atladóttir gönguleiðsögumenn, þaulvant heimafólk sem þykir fátt skemmtilegra en að segja frá sveitinni sinni.
Tröllaskaginn er þekktur fyrir mikilfengleg fjöll, djúpa firði og nálægðina við sjóinn. Fjöldi slóða liggja milli dala og fjarða á skaganum og voru á árum áður notaðar sem samgönguleiðir milli bæja. Tilgangur þessara slóða hefur breyst með tímanum, en þær eru enn mikilvægur hluti af ferðaleiðum sumar sem vetur og bjóða upp á einstaka upplifun fyrir göngumenn.
Þrír dagar – þrjár byggðir
Fyrsta daginn hitum við upp með léttri gönguferð á Sótahnjúk, tindinn sem gaf Sóta Summits nafnið sitt. Þetta er formfagur og aðgengilegur hnjúkur sem rís um 400 m yfir nágrenni sitt. Af toppi hans má sjá vítt og breitt yfirFlókadalinn, landnám Hrafna-Flóka Vilmundarsonar. Úti fyrir ströndum gárar sjórinn við sjóndeildarhring, þar sem himininn mætir Norðuríshafinu við ystu brún.
Næsta dag liggur leiðin til Ólafsfjarðar þar sem við fylgjum Botnaleiðinni til Siglufjarðar. Þessi leið tengdi saman Siglufjörð og Ólafsfjörð um aldir. Við göngum fyrsta spölinn upp eftir Skeggjabrekkudal, æjum við botn Héðinsfjarðar, síðan er haldið í Hólsskarð og niður Hólsdal í Siglufirði. Gengið er um leifar af hesta- og kindagötum, róleg hækkun í byrjun og aflíðandi brekkur niður í Hólsdal. (18 km, 8-10 klst, hækkun 600 m)
Síðasta daginn byrjum við á Siglufirði og göngum þaðan til Fljóta yfir Siglufjarðarskarð. Gengið er gamla Skarðsveginnfrá skíðasvæðinu upp að skarðinu sjálfu. Á leiðinni niður í Fljótin fylgjum við Póstleiðinni í átt að Hraunum og niður til sjávar. Þetta er einstaklega falleg gönguferð með ótrúlegt útsýni yfir hafið, fjöllin og Fljótin. (12 km, 3-4 klst, hækkun 400 m)
Hágæða viðurgjörningur
Á kvöldin munu ferðalangar njóta kyrrðar, þæginda og hágæðaviðurgjörnings á Sóta Lodge. Eftir stífan göngudag er fátt betra en að slappa af í Barðslaug, sem er í næsta húsi. Á laugardeginum er göngugörpum boðið upp á vatnateygjur og slakandi flotstund í lauginni. Öll kvöld er boðið upp á þriggja rétta veislukvöldverð, þar sem hráefni úr heimabyggð eru undirstaða sannkallaðrar veislu fyrir bragðlaukana.
Þetta er tilvalin ferð fyrir gönguáhugafólk, sem vill njóta sumarsins á göngu í sveitasælu og litbrigðum norðlenskrar náttúru.
Innifalið í verði
- Allar máltíðir meðan á ferð stendur
-
- Morgunverður alla morgna
- Pakkað nesti á göngudögum
- Þriggja rétta kvöldverður öll kvöld
-
- Leiðsögn reynds leiðsögumanns
- Gæðagisting á Sóta Lodge
- Aðgangur að Barðslaug (aðeins nokkur skref frá Sóta Lodge), heitur pottur og sána
- Flotstund og vatnateygjur
Ekki innifalið
- Skutl milli staða
- Slysatryggingar
- Áfengir drykkir
Dagsetningar
- 22. – 25. ágúst 2024
- Fleiri dagsetningar væntanlegar ef aðsókn er næg
- Einnig er hægt að óska eftir sér dagsetningum fyrir hópa – info@sotisummits.is
Verð: (Lágmarksfjöldi í ferðina er 6 manns)
- 129.000 isk á mann miðað við tvo í herbergi
- 169.000 isk á mann miðað við einstaklingherbergi
Einkaferðir
- Viltu gönguferð fyrir þig og/eða hópinn þinn?
Sendu okkur línu á info@sotisummits.is eða fylltu út boxið hér við hliðina
Fyrir hverja er ferðin?
- Ferðin hentar öllu áhugasömu göngufólki sem vill njóta útivistar og einstakrar náttúru Norðurlands. Leiðsögumaður stillir gönguhraða eftir getu hópsins.
Hvað á að koma með
- Gönguskó
- Göngubuxur (þægilegar buxur til að ganga í, alls ekki gallabuxur)
- Vatnsheldar buxur
- Vatnsheldan jakka
- Þunnar ullarbuxur
- Þunna ullarpeysu
- Bakpoka til dagsferða ( min 20 l )
- Göngustafi (valkostur)
- Sólarvörn
- Litla sjúkratösku
- Myndavél
Dagskrá (tímasetningar háðar breytingum eftir aðstæðum)
Fimmtudagur
14:00 – Koma á Sóta Lodge
15:00 – Gengið á Sótahnjúk frá Sóta Lodge
18:00 – Heimkoma, Barðslaug opin fyrir gesti.
19:30 – Kvöldmatur á Sóta Lodge
Föstudagur
8:00 – Morgunmatur
10:00 – Ekið á Ólafsfjörð
10:30 – Gengið upp Skeggjabrekkudal
13:00 – Hádegismatur í náttúru Tröllaskaga.
18:30 – Koma á Sóta Lodge. Barðslaug opin fyrir gesti.
19:30 – Kvöldmatur á Sóta Lodge
Laugardagur
8:00 – Morgunmatur
10:00 – Ekið á Siglufjörð
10:30 – Brottför frá Siglufirði, gengið upp Skarðsdal
14:30 – Hádegismatur í náttúru Tröllaskaga
17:00 – Koma á Sóta Lodge. Barðslaug opin fyrir gesti, flotstund og vatnateygjur
19:30 – Kvöldmatur á Sóta Lodge
Sunnudagur
8:00 – Morgunmatur
10:00 – Pakkað og gengið frá
12:00 – Brottför frá Sóta Lodge
AFBÓKUNAR- OG ENDURGREIÐSLUSKILMÁLAR
- 80% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 7 daga fyrirvara
- 50% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 72 klst fyrirvara
- Engin endurgreiðsla ef afbókað með minna en 72 klst fyrirvara