Gönguferð í Hvanneyrarskál
Þessi ganga leiðir okkur eftir snjóflóðavarnargörðum og vegslóða upp í Hvanneyrarskál. Á leiðinni lesum við í landslagið og túlkum það sem fyrir augu ber, með því að tengja saman náttúrufar, landslag og sögu staðarins. Þetta er þægileg ganga eftir breiðum stígum og vegslóðum.
Á síldarárunum var Hvanneyrarskál sveipuð rómantískum ljóma sem sérstakur unaðsstaður elskenda. Skálin er í um 200 m hæð yfir sjávarmáli og þegar upp er komið er hægt að njóta gróðursældar og nátttúrufegurðar í faðmi Hvanneyrarhnjúks og Hafnarhyrnu. Frá endurvarpsstöðinni við brún skálarinnar er frábært útsýni yfir fjörðinn.
Við bjóðum síðdegisferðir sumarið 2024
á þriðjudögum, og fimmtudögum kl. 16.30
og laugardögum kl. 10
Viltu ganga í góðra vina hópi? Hafið samband við info@sotisummits.is eða sendið okkur fyrirspurn hér á síðunni – við bjóðum einkaferðir samkvæmt óskum gesta.
Lengd ferðar: u.þ.b. 2 klst.
Verð: 5.900 kr/mann (minnst 2 þátttakendur)
Ókeypis fyrir börn að 15 ára aldrei
Innifalið í verði
- Leiðsögn og sögustund
Útbúnaður
- Þægilegur fatnaður fyrir gönguferð
- Góðir skór til gönguferða (fyrir Hvanneyrarskál)
- Vatnsflaska (fyrir Hvanneyrarskál)
Viltu meira krefjandi gönguferð? Við bjóðum skemmtilega og klassíska gönguferð um Siglufjarðarskarð með viðkomu í fjörunni að Hraunum – og getum líka sérsniðið leiðarval að þínum þörfum. Hafið samband!