Einstök fjallaskíðaferð 2025 um Jökulfirði
Við erum stolt af því að bjóða upp á ógleymanlega, sex daga fjallaskíðaferð 2025 um Jökulfirði við friðlandið á Hornströndum um borð í eikarbátnum Örkinni. Ósnortnar brekkurnar bíða ævintýraþyrstra skíðamanna í þessari náttúruparadís, þar sem heimskautarefurinn gengur frjáls, og einu mannsporin eru þín eigin. Í lok dags er skíðað frá tindi niður að strönd, þar sem næturgistingin bíður við akkeri í botni fjarðar. Sætaframboð er takmarkað svo það er vissara að hafa samband á info@sotisummits.is sem fyrst!
Jökulfirðir eru engu líkir: víðáttumikið fjalllendi, rofið af djúpum fjörðum og jökuldölum. Engin vélknúin farartæki á landi, þyrlur eða flugvélar eru leyfileg, þannig að ef þú ert að leita að kyrrð, fjarlægð og einstöku ævintýri er þetta skíðaferð fyrir þig.
Fyrirtaksaðbúnaður í eikarbátnum Örkinni
Eikarbáturinn Örkin hefur verið endurnýjaður með natni og býður nú upp á þægilega aðstöðu fyrir landkönnuði. Snyrtilegar káetur tryggja hvíld að loknu dagsverki, á meðan rausnarlegur morgunverður og bragðgóðar máltíðir veita orku í skíðaævintýrin sem bíða á hverjum morgni. Inn í milli gefast tækifæri til að nýta sér róðrarbrettin um borð eða njóta útsýnisins af þilfarinu. Þú getur jafnvel prófað hressandi dýfu í ískaldan Vestfjarðasjóinn!
Dæmi um dagskrá ferðar
Háð veðri og aðstæðum
- Dagur 1: Við mætum á höfnina á Ísafirði um kl. 11:00. Eftir öryggiskynningu höldum við af stað yfir Ísafjarðardjúp og vörpum akkeri þegar komið er í Jökulfirði. Mögulega verður tækifæri til að skella okkur í stutt rennsli fyrir kvöldverð.
- Dagar 2-5: Við skinnum upp hlíðar og yfir fjallaskörð milli fjarða og njótum þess að vera ein í þessu stórbrotna ósnortna víðerni. Í lok dags rennum við okkur niður að strönd og erum ferjuð um borð í Örkina til að njóta kvöldsins þar.
- Dagur 6: Síðasta rennslið að morgni, áður en siglt er til hafnar á Ísafirði. Gert er ráð fyrir að gestir geti tekið síðdegisflug til Reykjavíkur, sé þess óskað.
Innifalið
- 5 nætur um borð í Örkinni
- Allar máltíðir á meðan á ferð stendur
- Öryggiskynning á fyrsta degi
- Litlir hópar og reyndur fjallaleiðsögumaður
- Afþreying þá daga sem ekki er siglt
*Hægt er að leigja skíði, skinn og skíðabrodda
*Hægt er að leigja snjóflóðavarnarbúnað (ýli, staf og skóflu)
Dagsetningar
13.-18. apríl 2025 – UPPSELD
20.-25. apríl 2025 SÆTI LAUS
27. apríl – 2. maí 2025 – UPPSELD
4.-9. maí 2025 – SÆTI LAUS
Verð
585.000 kr./mann í tvíbýli.
Athugið að þegar bókað í greiðsluvélinni hér til hliðar er greitt 20% óafturkræft staðfestingargjald, en fullnaðargreiðsla er greidd ekki síðar en tveimur vikum fyrir brottför.
Hafðu samband á info@sotisummits.is ef þú vilt skipuleggja hópferð fyrir þig og skíðafélagana!
AFBÓKUNAR- OG ENDURGREIÐSLUSKILMÁLAR
- 80% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 7 daga fyrirvara
- 50% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 72 klst fyrirvara
- Engin endurgreiðsla ef afbókað með minna en 72 klst fyrirvara
Ef ferð er frestað vegna veðurs, er boðið upp á eftirfarandi kosti:
- Fulla endurgreiðslu
- Tilfærslu ferðar á aðra dagsetningu