Samflot í Barðslaug
Í samflotstundum í Barðslaug fá þátttakendur tækifæri til að upplifa kyrrð og endurstillingu í þyngdarleysi vatnsins, án meðferðar. Þátttakendur fá flothettu og fótaflot og fljóta sjálfstætt undir umsjón leiðbeinanda. Að loknu floti gefst tækifæri til að slaka á í heita pottinum.
Átta manns geta að hámarki tekið þátt í samfloti hverju sinni og tekur upplifunin um klukkustund í heild.
4.500 kr. á mann auk aðgangseyris
Flotmeðferð
Eftir samkomulagi
Í flotmeðferð Flothettu eru þátttakendur leiddir gegnum upplifun sem felur í sér hreyfingar í vatninu, líkamsmeðferð og að lokum fljóta þátttakendur sjálfstætt og njóta þyngdarleysis og slökunar.
Flotmeðferð í vatni losar um streitu, róar hugann og veitir slökun, auk þess að hjálpa til við að endurnæra vöðva líkamans eftir áreynslu. Það slaknar á vöðvum og tognar á stoðkerfi líkamans. Þátttakendur upplifa kyrrð og algjört áreynsluleysi, umvafðir hlýju vatni jarðar undir öruggri stjórn leiðbeinanda. Að lokinni meðferð gefst tækifæri til að slaka á í heita pottinum.
Boðið er upp á einstaklingsmeðferð og tveggja manna stundir, sem upplagðar eru fyrir pör og vini. Meðferðin tekur í heild um klukkustund.
Einstaklingsflotmeðferð: 15.000 kr auk aðgangseyris
Tveggja manna meðferð: 22.000 kr auk aðgangseyris
Innifalið:
- Aðgangur að laug
- Flotbúnaður og umsjón/meðferð