Veturinn er kominn á Tröllaskaga

Snjórinn hylur fjöllin, dagarnir styttast og skammdegið færist yfir. Hér yst á skaganum leggst lífið þó ekki í dvala — það tekur bara á sig annan svip.

Þegar aðventan nálgast kvikna ljósin í bæjunum og skreytingar setja svip á göturnar. Undirbúningur hefst fyrir viðburði fyrir heimamenn og gesti, og bæjarlífið fær á sig hátíðlegan blæ. Bæði Ólafsfjörður og Siglufjörður eru þekktir fyrir fallegt yfirbragð á aðventunni, með skreytingum sem lífga upp á skammdegið.

Vetrarútivistin getur verið ótrúlega fjölbreytt, allt eftir því hvers konar upplifun fólk leitar að. Fyrir þau sem vilja kynna sér svæðið og það sem hægt er að gera þar er Visit Troll Peninsula góður staður til að byrja. Það er upplýsingavefur nýstofnaðs Ferðaklasa Fjallabyggðar, sem vinnur að þróun og kynningu svæðisins fyrir ferðafólk.

Meðal þess sem hægt er að njóta yst á Tröllaskaga að vetri til

  • Gönguskíði: Ólafsfjörður er sérstaklega áhugaverður fyrir þau sem vilja fara á gönguskíði. Hjá Sóta Summits bjóðum við líka upp á skíðagöngunámskeið í Fljótum, þar sem þátttakendur kynnast umhverfinu á skíðum, og sérstaka ferð á utanbrautargönguskíðum fyrir þau sem vilja prófa þann ferðamáta.
  • Skíðasvæði: Skarðsdalur við Siglufjörð þykir með skemmtilegri skíðasvæðum á landinu opnar um leið og aðstæður leyfa.
  • Fjallaskíði: Fjallabyggð og ystu byggðir Tröllaskaga eru meðal helstu miðstöðva fjallaskíðaiðkunar á Íslandi. Fjallaskíðafólk fylgist með snjónum og veðrinu og bíður færis á fjöllum. Hjá Sóta Summits bjóðum við upp á fjölbreyttar fjallaskíðaferðir undir leiðsögn eins besta leiðsögufólks í fjallaskíðamennsku. Fjallaskíðaferð með leiðsögn okkar og gistingu á Sóta Lodge er frábær upplifun.
  • Snjóþrúgur: Sóti Summits býður styttri ferðir í Fjallabyggð og lengri upplifunar- og vellíðunarferðir í Fljótum, þar sem við endum daginn á yndislegri flotstund í Barðslaug.
  • Hestaferðir: Í Langhúsum í Fljótum eru hestaferðir í boði allt árið um kring.

Veðrabrigðin, vindurinn og myrkrið eru líka hluti af vetrinum hér. Stundum birtast norðurljósin og breyta kvöldinu, en aðra daga er gott að koma inn eftir útiveruna og njóta kyrrðarinnar.

Veturinn á Tröllaskaga er ekki bið eftir sumrinu. Hann hefur sína eigin dagskrá — með útiveru, viðburðum og rólegum stundum í skammdeginu.