Við eigum yfirleitt nóg af hlutum

Skáparnir okkar eru fullir af allskonar, það er erfitt að skrifa óskalista og þegar okkur vantar eitthvað getum við yfirleitt orðið okkur úti um það sjálf. Ef við erum hrreinskilin, þá er þetta staðan hjá okkkur – og flestum sem við þekkjum og þykir vænt um.

Samt viljum við gleðja fólkið sem okkur þykir vænt um

Kannski er kominn tími til að varpa fyrir róða hefðbundnum hugmyndum um gjafir. Kannski felst besta gjöfin í að gefa ekki harða pakka, helædur pakka em erur svo mjúkir og loftkenndir að þeir verða varla höndlaðir. Í hviklyndum nútímanum skortir okkur oft mest tíma og nánd, tækifæri til að eiga gæðastundir með því fólki sem okkur þykir varið í.

Gleði og lísfyllingu má finna í mörgu: áskorun og upplifun sem er fyrir utan þægindarammann, skíðaferð í brakandi kulda, gönguferð á fjöllum þar sem samtalið fær að flæða, heitri laug eftir góðan dag úti í náttúrunni, kvöldverði sem enginn þarf að elda sjálfur eða persónuleg leiðsögn sem birtir umhverfið á nýjan hátt. Stundum er það einmitt þessi hvíld frá hversdeginum sem við höfum saknað — okkur langar mest í ekki meira dót, heldur svigrúm til að njóta gæðastunda og upplifa náttúruna í kringum okkur.

Á Sóta trúum við á gildi slíkra stunda

Í Fljótunum, þar sem við erum umkringd fjöllum, víðattu og  og hafi, gefst tækifæri til að hægja á sér og verja tíma saman. Dagurinn getur verið fullur af útiveru og ævintýrum, eða ró og næði og góðum mat, samtali og stund í Barðslaug. Hvort tveggja getur verið gjöf.

Gjafabréf eða skipulögð ferð geta því verið leið til að gefa meira en dvöl eða afþreyingu. Þau geta verið tilefni til að hittast, skapa minningar og njóta samverunnar — án þess að þurfa að ákveða fyrirfram hvað stendur upp úr.

Kannski er nýja skilgreiningin á góðri gjöf einföld: Hún hjálpar okkur að muna að njóta. Njóta þess að vera til, að geta verið úti og hrópað upp í vindinn, að geta andað að sér fjallalofti í góðra vina hópi..

Og stundum er besta gjöfin einfaldlega tíminn sem við gefum hvert öðru.

 

Kynnið ykkur gjafabréf Sóta hér