Forsala í Þyrluskíðaferðir, 11.apríl – 4. maí 2025

Nú er tíminn til að láta sig dreyma um sólbjarta skíðadaga næsta vors og tryggja sér ógleymanlegt ævintýri á einstökum kjörum! Við bjóðum einstakt forsöluverð á ferðum Sóta Summits og Summit Heliskiing næsta vor. Takmörkuð pláss í boði!

Dagsferð í þyrluskíðun

Skrepptu norður og láttu eftir þér dásemdardag á Tröllaskaga í fylgd með okkar hressasta fjallaleiðsögufólki. Ótrúlega skemmtileg upplifun. Fullt verð á dagsferðinni er 185.000 Isk- forsöluverð 140.000 Isk.*

Smelltu hér til að bóka dagsferð í forsölu

Með fjöllin í faðminum – tveggja daga samsett ferð

Það er frábær upplifun að fljúga á toppinn og skíða niður ósnortna brekku í glampandi sól. Sumir fá meira út úr því að vinna sér fyrir rennslinu með því að skinna upp á fjallaskíðum – og svo eru þeir sem vilja bæði. Innifalið í verðinu er gisting á Hótel Sóta Lodge, allar máltíðir og aðgangur að sundlaug, heitum potti og sánu í Barðslaug. Fullt verð á þessari ferð eru 380.000 Isk- forsöluverð 215.000 Isk.*

Smelltu hér til að bóka þyrlu- og fjallaskíðaferð í forsölu

 

* Skilmálar: Forsöluverð gildir fyrir tvær ofangreindar ferðir tímabilið 11. apríl – 4. maí 2025. Öll verð eru endanleg og miðast við staðgreiðslu. Greiðsla er óafturkræft og fæst ekki endurgreidd komi til forfalla.
Ef veður eða aðrar aðstæður koma í veg fyrir að hægt sé að fljúga á ferðadag, bjóðum við upp á að færa til dagsetningu, eða fulla endurgreiðslu ef það gengur ekki upp.