Sóti býður eftirminnilegar fjallaskíðaferðir 2025 á Tröllaskaganum!
Þetta eru ómissandi fjallaskíðaferðir fyrir þá sem vilja sleppa úr amstri hversdagsins og anda að sér fersku fjallalofti. Ferðast verður um fjöllin sem umlykja Fljótin og Siglufjörð, þar sem tækifæri gefst að spreyta sig í brekkum á öllum erfiðleikastigum.
Þegar komið er á Sóta Lodge eftir góðan dag getur þú látið líða úr þér og slappa af – við sjáum um að þú njótir og nærist vel.
Fyrir byrjendur og lengra komna
Hvort sem þú ert að stefna á þína fyrstu brekku utanbrautar, eða vilt bæta reynslu í sarpinn og skemmta þér í fagurri náttúru og góðum félagsskap, eru þriggja eða fjögurra daga fjallaskíðaferðir Sóta Summits 2025 tækifæri sem þú mátt ekki missa af!
Tröllaskagi hefur öðlast verðskuldað orðspor sem spennandi áfangastaður þeirra sem vilja fara ótroðnar slóðir á skíðum. Vaxandi fjöldi skíðafólks er að uppgötva frelsið sem felst í utanbrautarskíðun og fjallamennsku og svæðið okkar býður upp á brekkur á öllum erfiðleikastigum. Ægifagurt landslagið nyrst á Tröllaskaga tryggir eftirminnilega upplifun með fremsta skíðaleiðsögufólki Íslands.
Leiðsögufólkið okkar er í úrvalsliði fjallafólks á Íslandi og hefur skíðað svæðið um árabil. Ferðirnar okkar eru ekki bara frábær skemmtun og útivist, heldur njóta þátttakendur einnig þess að fá þjálfun og fræðslu sem skerpir reynsluna og býr undir frekari landvinninga á fjallaskíðum.
Fjallaskíði og frábært atlæti
Að skíðadegi loknum er komið heim á Sóta í eftirmiðagshessingu. Á Sóta Lodge er boðið upp á smekklega innréttuð „en suite“ herbergi, sem og aðgang að Barðslaug með heitum potti í næsta húsi. Endurnærandi flotstundir og vatnateygjur undir víðum norðurskautshimni tryggja að allir geti látið líða úr sér eftir átök dagsins.
Rómaður þriggja rétta kvöldverður að hætti hússins slær botninn í dásamlega daga og vel útilátið morgunverðarhlaðborð hleður orkustöðvarnar að morgni dags. Bragðgott hádegisnesti tryggir endingu og úthald í útivistinni.
Starfsfólk Sóta Lodge tryggir að öllum líði vel og notalega, en friðsældin í sveitinni tryggir góðan og endurnærandi nætursvefn.
3 daga ferðir 2025
21.-23. mars – LOKAÐ
28.-30. mars
4-6. apríl
Hægt er að bæta við dagsetningum fyrir hópa, sé þess óskað
Einkaferð
- Viltu sérferð fyrir þig og/eða hópinn þinn?
Sendu okkur línu á info@sotisummits.is
Innifalið í verði
- Allar máltíðir meðan á dagskrá stendur (allt frá kvöldverði við komu til hádegisverðar á lokadegi)
- Leiðsögn faglærðs fjallaleiðsögumanns
- Snjóflóðabúnaður (bakpoki, skófla, stöng, ýlir)
- Gæðagisting á Sóta Lodge
- Après ski
- Aðgangur að Barðslaug (aðeins nokkur skref frá Sóta Lodge)
- Flotstund og vatnateygjur
Hvað á að koma með
- Skíði (fjallaskíði eða splitboard) og búnað (skinn, brodda, stafi, hjálm, skíðagleraugu)
- hægt er að leigja úrvals Blizzard Zero G fjallaskíði gegnum Sóta Summits.
- Vind- og vatnsheldan jakka
- Vind- og vatnsheldar buxur
- Ullarnærföt
- Hanska
- Vatnsflösku
- Sólarvörn
- Litla sjúkratösku
- Inniskó
Verð fyrir 3 daga námskeið 2025
- 99.500 isk á mann. Verð miðast við tvo í herbergi
- Verð fyrir einn í einstaklingsherbergi er 138.900 isk á mann
(Lágmarksfjöldi í námskeiðin miðast við 6 manns)
Þegar þú bókar gegnum hlekkinn hér til hliðar greiðir þú 20% óafturkræft staðfestingargjald til að festa bókunina. Greiða skal eftirstöðvar eigi síðar en tveimur vikum fyrir ferð.
Fyrir hverja er ferðin?
- Þessi ferð hentar sem eru öllum í góðu líkamlegu formi og hafa einhverja reynslu af skíðamennsku. Leiðsögufólkið okkar sér til þess að gönguhraðinn og brekkur henti öllum í hópnum.
Dæmi um mögulega dagskrá, við aðlögum að þínum væntingum (allar tímasetningar eru með fyrirvara)
Dagur 1
15:00: Mæting á Sóta Lodge
16:00: Fundur með leiðsögumanni. Farið yfir búnað og hann prófaður (kennsla í öryggisþáttum: ýlaskoðun og stutt ýlaleit, notkun á snjóflóðastöng) og farið í stuttan upphitunarleiðangur.
19:30: Kvöldmatur
Dagur 2
08:00-10:00: Morgunmatur
10:00: Brottför (hádegismatur tekinn með í bakpoka)
16:00: Koma á Sóta Lodge.Aprés ski, vatnateygjur og flotstund
18:30: Farið yfir daginn og næsti dagur skipulagður
19:30: Kvöldmatur
Dagur 3
08:00-10:00: Morgunmatur
10:00: Haldið til fjalla. Við finnum bestu brekkur dagsins og njótum lífsins
14:00: Koma á Sóta Lodge, hægt að fara í sturtu áður en tékkað er út
15:00: Brottför
AFBÓKUNAR- OG ENDURGREIÐSLUSKILMÁLAR
- 80% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 7 daga fyrirvara
- 50% endurgreiðsla ef afbókað með meira en 72 klst fyrirvara
- Engin endurgreiðsla ef afbókað með minna en 72 klst fyrirvara
Ef námskeiði er frestað vegna veðurskilyrða, er boðið upp á eftirfarandi kosti:
- Fulla endurgreiðslu
- Tilfærslu ferðar á aðra dagsetningu